Skip to main content

Sunna og Marína Ósk á Egilsstöðum

28. ágúst 2024
Jazzkonurnar Sunna og Marína Ósk verða með tónleika í Sláturhúsinu þar sem þær munu leika ný lög Sunnu við ljóð Jóns úr Vör í bland við nokkrar jazzábreiður. Efnisskráin er góð blanda af hugljúfum lögum og dillandi latínsmellum. Sunna Gunnlaugs er fastagestum jazztónleikaraðar Sláturhússins vel kunnug en á laugardaginn  mætir hún með söngkonunni Marínu Ósk .