Yfirstandandi sýningar
Lesa meira:Yfirstandandi sýningar
- Hits: 632
Opnunartími
Sumar:
Þriðjudagar - föstudagar: 11 - 16
Laugardagar: 13 - 16
Lokað á sunnudögum og mánudögum
Vetur:
Mánudagar - föstudagar: 11 - 16
Lokað um helgar
Hlutverk Sláturhússins er að efla lista- og menningarstarf á Austurlandi. Miðstöðin leggur áherslu á sviðslistir (e. performing arts) sem byggja á flutningi verka þar sem mannslíkaminn og röddin eru helstu verkfæri tjáningar. Vegna þessa leitast hún við að leggja sviðslistir til grundvallar þeim áhersluverkefnum sem unnin eru. Sú stefna útilokar þó ekki aðkomu miðstöðvarinnar að öðrum list- og menningarformum. Önnur og ekki síður mikilvæg áhersla er lögð á lista- og menningaruppeldi barna og ungmenna. Lögð er áhersla á að sem flest verkefni hafi fræðslugildi samhliða listrænum gildum. Sláturhúsið tekur árlega þátt í BRASi ,menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, ásamt öðrum menningarmiðstöðvum á Austurlandi.
Sláturhúsið (áður Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs) var stofnað árið 2005 og er ein þriggja menningarmiðstöðva á Austurlandi samkvæmt samningi ríkisins og sveitarfélaganna á Austurlandi um menningarmál. Menningarmiðstöðin er lykilstofnun við framkvæmd menningarstefnu sveitarfélagsins.
Sláturhúsið Menningarmiðstöð stendur við Kaupvang 9 á Egilsstöðum.
Forstöðumaður er Ragnhildur Ásvaldsdóttir
Sláturhúsið Art Center is located in Egilsstadir. As a Center for Performing Arts we are inspired every day to create, share, teach, excite and perform for our community. Although performing arts are our main focus we also host art exhibitions.
Director of Sláturhúsið is Ragnhildur Asvaldsdottir
Samþykktir Sláturhúsið Menningarmiðstöð
Forstöðumaður
Umsjón/tæknimál